spurning um að reyna aftur :)Hulda Ósk

Heil og sæl Smile

jæja það er spurning um að reyna að byrja aftur að blogga Cool

Spurning hvort það séu einhverjir að blogga ja eða lesa blogg ennþá en það verður bara að koma í ljós hehehe

En hvað er að frétta hmmm já það er svosem ekki mikið nema það að í dag er fyrsti virki dagurinn síðan ég hætti að vinna, frekar skrítið að vera hætt á leikskólanum. En það er allt að fara að gerast, skólinn að byrja bráðum og brjálað stuð í gangi hehe

Helgin var svaka róleg, bara chill að mestu, utan við það hún Birna mín var í bænum og það var svaka gaman að hitta þau öll Smile

Við skruppum í bíó um helgina og Dóra sín kom með, myndin kom eiginlega á óvart ef það er hægt að segja það þannig þar sem ég vissi ekkert hverju ég átti von á en bara nokkuð góð Smile

Það er svo fyndið að ég sit hér og skrifa og hugsa eiginlega bara um hvað ertu að bulla kona hahahhaha

En ef einhver er þarna úti þá væri gaman að vita það Wink

hafið það gott kæru vinir Kiss

Er svo ekki að standa mig í blogginu heheHulda Ósk

Já héðan er svosem ekki mikið að frétta, gerist ekkert svaka mikið finnst mér hehe
Núna sit ég heima og heyri varla í sjálfri mér hugsa, það er verið að laga aðeins húsið, ja eða bakdyrainnganginn. Ég er eiginlega svo óheppin að eiga 50 % í húsinu þannig að mest af kosnaðinum lendir á mér. Hverju er samt við öðru að búast þegar ég á í hlut hahaha

Annars er lífið bara ljúft, er að fara suður næstu helgi í fermingu, hlakka rosa mikið til í að hitta allt liðið Smile
Þetta er búið að vera svaka erfið ákvörðun hvernig ég ætla að hafa þetta allt en ég þurfi að komast að niðurstöðu og stend við hana.

Úti er æðislegt veður, svolítið kalt en svaka gott samt Smilesvo fallegt að sjá tréin þegar ég vaknaði í morgun en ég vil nú samt frekar sumar og sól, er að vísu sól úti en frostsól og sumarsól er sko alls ekki það sama haha

Í dag ætla ég að fara á hokkýleik, ójá. Andri er að spila og maður verður að styðja frænda sinn og ekki veitir þeim af því þar sem það kemur í ljós hvort þeir komast áfram í kvöld eða hvort þeir eru dottnir út, búnir að tapa 2 leikjum, er svo ekki að skilja það þar sem þeir eiga alveg að geta rúllað þessu upp Smile

Hjölli átti afmæli 26 mars og vorum mikið að spá í að fara út að borða og kannski bara í bíó og eitthvað í kvöld, aðeins að halda upp á það Smile 
Verður þá að vera eftir leikinn, því honum ætla ég alls ekki að missa af Cool

Annars er nú ekki mikið að gerast held ég hehe
Var samt að horfa út í gær, ég er ekki viss en held að það hafi verið að leita í bíl. Mætti maður með hund og hundurinn var látinn skoða allt í bílnum, hvað er að verða um Akureyri maður bara spyr sig.
Gæti samt auðvitað hitt þannig á að maðurinn þekkti fólkið og ég hafi verið að misskilja aðstæður, gott betur vona það en það leit alls ekki þannig út.

Allavega hafið það gott um helgina, ætla að reyna að minnka facebook og vera duglegari að blogga Wink

svæðanudd öðruvísi en gott samt :)Hulda Ósk

Það var allt að gerast í gær en samt ekki eins og vanalega haha
Það var náttúrulega ömulegt veður í gær og ég fór nú ekki mikið út, kíkti samt aðeins í svæðanudd. það var skrítið, hef heldur aldrei prufað svoleiðis, bara gaman að prufa eitthvað nýtt Smile

Áður en ég var að leggja af stað ætlaði ég aðeins að fríska upp á útlitið en það varð nú ekkert úr því, mér tókst að gleyma öllu snyrtidótinu mínu í sundlauginni í Hrafagilsskóla, ekki að það eigi að koma mér mikið á óvart hehehe
En ég ætlaði nú að reyna að nálgast það en auðvitað fór bíllinn ekki í gang í gær, vá ég held að það séu álög á mér Undecided

Ætli maður verði ekki að reyna að kaupa nýjan geymi í bílinn, bara ömulegt að finna alltaf einhvern til að gefa mér straum hehe

Annars átti ég bara kósý dag í gær, ákvað að baka köku og gera sallat Smile Mamma og Ragnheiður komu svo í kaffi Smile

Núna er maður bara bíllaus, hafiði tekið eftir því hvað maður þarf mikið á bílnum að halda þegar maður getur ekki notað hann, bara ótrúlegt hvað það hittir alltaf á Undecided

Jæja kannski maður ætti kannski að finna sér eitthvað að gera, bíllaus og svona hehe

ætla að fara að stunda nudd heheHulda Ósk

Það er einhverskonar kreppuhelgi hjá sáló þessa helgi og auðvitað nýtti ég mér það Cool ég fór til miðils í gær og hann var alveg svakalega skemmtilegur, náði að segja mér hluti sem ég sjálf vissi ekki einu sinni en komst að því þegar ég kom heim aftur hehehe
Síðan fór ég í nudd í morgun, vá maður, ég á sko aftur eftir að fara til hennarSmile fékk sko nafnið og síma og fer um leið og ég get hehehe
En það gat nú ekki gengið alveg eins og ég vildi, ég þurfti að labba þangað. Ég fór út í bíl og startaði bílnum en ekkert gerðist, alveg ég að eitthvað svona gerist hehehe
Dóra kom svo að verða 11 og við ætluðum að redda þessu hehe en sem betur fer þurftum við þess ekki þar sem maðurinn í næsta húsi var úti að labba með hundinn sinn og ég kallaði á hann, ekki í fyrsta sinn hahaha
ég spurði hann þegar hann var búin hvort ég gæti ekki ráðið hann á umboðslaunum til að sjá um að starta bínum fyrir mig Laughing
En þetta gekk og við skruppum í sund í Hrafnagil eftir það, það var sko þokkalega kalt en alltaf gaman í sundi en ég og Dóra héldum okkur bara í pottinum hahaha
Á heimleiðinni var komið við í Vín og fengið sér ís Smile

Til að toppa daginn ákváðum við að grilla í kvöld hehe Já þá var frekar mikil snjókoma en maður lætur svoleiðis ekki stoppa sig Tongue out
Ragnheiður og mamma komu í mat ásamt mér og Dóru og börnum og þetta var frábært stund Smile
Núna lykta ég eins og reykhús en það er alveg þess virði hahaha

Hjölli er búin að vera fyrir sunnan síðan á miðvikudag og gengur bara mjög vel hjá honum, hef nú fengið að heyra í honum hljóðið  Smile svo ánægð með að honum líður bara ágætlega þarna Smile

Annars er bara ekki mikið að gerast þannig séð. Alltaf allt á fullu en samt eiginlega ekkert að gerast hehehe
efa ekki að þið þekkið þetta Smile



pabbahelgiHulda Ósk

Já núna er pabbahelgi, ég átti svaka kósý kvöld í gær. Eða eyddi slatta af því sofandi í sófanum, greinilega erfitt að vera ég hehehehe

Ætla nú að kíkja á pottakynningu á eftir, alltaf gaman að gera eitthvað öðruvísi Smile svo er bara spurning hvað maður gerir við restina af deginumCool

Er alveg í stuði til að hanga heima og liggja upp í sófa en líka til í að gera eitthvað skemmtilegt, eins og maður segir þá veit maður alveg hvernig dagarnir eiga eftir að enda Tongue out hehehe

En allavega hafið það gott um helgina og njótið þess að það er helgi Wink

Hefði viljað vita fyrr að fólk gæti ekki lesið hugsanir mínar hahaHulda Ósk

Ég er svo hissa, ég hélt að ég gæti hugsað og þið gætuð bara lesið það haha. En Ingibjörg benti mér á að það væri ekki hægt Smile

Hmmm hvað er að gerast, það er kannski ekki margt að gerast þannig séð. Stelpurnar eru búnar að vera mikið hjá ömmu sinni síðustu daga, það er búið að vera frí í skólanum.
Ég skrapp suður á mánudag, náði að sjá litla frænda í smá stund, já og auðvitað Birnu og co líka en hafði aldrei séð litla frænda áður og omg hvað hann er sætur Smile Birna kann þetta sko alveg Wink

En já stelpurnar eru að fara til pabba sins um helgina og ég bara veit ekkert hvað ég ætla að gera af mér.

Ég er nú ekki að hafa neitt að segja, það virðist ekkert brjálaðslega mikið vera að gerast hjá mér, ætla bara að njóta þess að vera til Smile

Að lokum er hægt að fyrirgefa allt ?????
Sá eitt á facebook að sumir væru ekki nógu sterkir til að fyrirgefa en mig langar að vita hvort það sé alltaf hægt, ég tel nú að það gerist á endanum en það þarf kannski að gera slatta til að ná á þann punkt.

Hvað segi þið um það ????

Ekki mikið að segja fráHulda Ósk

Jæja hmmm hvað er að frétta, það er kannski ekki svo mikið. Ég ligg heima veik núna og það er ekki það skemmtilegasta sem ég geri.
En það sem er skemmtilegt, Stelpurnar voru hjá mér um helgina og Gabríel kom og gisti eina nótt líka Smile  Elska þær helgarSmile

Við fórum í bíó á laugardaginn, fórum að sjá Open Season 2, bara nokkuð góð mynd hehe
Gabríel var ekki alveg að nenna að vera svona lengi í bíó enda fórum við í 6 bíó, skiljanlegt að hann hafi verið þreyttur.
Það var ekkert farið i sund, fórum nú samt og fengum okkur ís á sunnudaginn, kannski var það of mikið fyrir mig og já ég lagðistSurprised hehehe nei það er víst ekki hægt að kenna ísnum um haha

Annars er nú frekar lítið að gerast, skil eiginlega ekkert hvað er að gerast í mínu lífi, svo fátt sem ég skil þar hehe

Ég veit að ég er fúl yfir því að hafa fengið þessa bévítans pest, ætlaði svo ekki að fá þetta en ég ætla sko ekki að vera lengi með hana ónei hún skal ganga hratt yfir hehe

Ég veit eiginlega ekkert hvað ég er að segja, held að heilinn sé ekki alveg að starfa rétt, ótrúlegt en satt hehehe

En endilega látið heyra i ykkur, leiðist heima Undecided

önnur helgi búinHulda Ósk

Vikurnar líða ekkert smá hratt. Var að skoða bloggið mitt áðan og vá það er komin vika síðan ég skrifaði eitthvað hér.
Samt hefur ekki mikið verið að gerast. Vinna, borða, sofa já og eitthvað svoleiðis hehehe

Ég fór aðeins út um helgina og það var mjög gaman. Það voru margir úti, margir sem maður sér ekki oft á djamminu Smile

Ég er í svaka krísu núna, lífið er frekar flókið finnst mér. Ég reyni að bregðast við öllu sem kemur á borðið eins vel og ég get, ég á bara svo erfitt með óvissu. Næ yfirleitt ekkert að höndla óvissu hehe

Annars höfum við það bara ágætt, ég og krakkarnir. En við söknum Hjölla auðvitað.
Ég veit nákvæmlega hvernig ég myndi vilja hafa allt í lífinu en málið er að ég get ekki ráðið þvíSurprised já ég veit mér finnst það líka skritið hehehehhe

En jæja ég hef nú bara ekkert að segja
hafið það gott Wink

Annáll helgarinnar heheheHulda Ósk

Það er bara strax komin sunnudagur, vá hvað helgarnar eru fljótar að líða.
Ég er búin að hafa það nokkuð gott yfir helgina. Fór í bíó í gær, fór að sjá Underworld Smile
Persónulega fannst mér hún skemmtileg, ég er alveg að fíla myndir um vampírur og varúlfa Embarassed kannski pínu klikk að fíla svoleiðis en já ég get verið pínu klikkuð hahaha

Tinna ákvað að gista hjá vinkonu sinni í gær, vona að þær hafi hagað sér vel hehe
Næst gista þær hér, reynum að leyfa þeim að gista til skiptis.

Tara er búin að vera svo mikið með Ólafi um helgina og það er búið að vera mjög gaman hjá þeim. Ég fékk að vera mikið með Birnu og það fannst mér svaka gaman. Hún er svakalega flott svona ólétt, það fer henni mjög vel. kannski hún fari að framleiða börn núna hahahahha spaug Birna mín Kiss sko með framleiðsluna hehehe

Ólafur virðist hafa ofnæmi fyrir Þrumu, bara leiðinlegt það en við náðum samt að hittast slatta, varð bara að passa að hann væri ekki mikið í kringum hana. Ekki gaman fyrir hann samt, auðvitað langar manni að leika sér við lítinn hund þegar maður er barn, sérstaklega þegar maður getur það ekki oft vegna ofnæmi.

Núna er Ragnheiður að skutla þeim út á flugvöll, væri svo til í að hafa Birnu mína aðeins lengurCry 

En ég ætla að skella mér á göngu á eftir, er búin að vera allt of löt að labba en núna er allt að fara á fullt aftur, ætla að fara á fullt að setja mig í forgang aftur og gera allt sem ég hef ætlað að gera fyrir mig Cool

Ég fékk kvörtun um daginn eða hmmm kannski ábendinu frekar. Það var sagt við mig að ég væri líklega lélegasti Akureyringurinn varðandi suðurferðir, að sú manneskja, semsagt Anna frænka þekkti engan annan Akureyring sem færi jafn sjaldan suður. Ég ætla að breyta því á þessu ári. ætla að skutlast fleiri ferðir, hvort sem ég fer ein eða með börnin Smile

En jæja ætla að taka mig til fyrir daginn, hafið það gott Kiss

Bílar kalla á vesen hahaHulda Ósk

Jæja fréttir síðustu daga hmmm já
það er nú frekar lítið að gerast hjá mér þessa dagana, er mest að reyna að gera eitthvað fyrir mig, veit nú samt ekki hversu vel það gengur haha

Við Ragnheiður systir fórum að labba i gær, ekki frásögufærandi en auðvitað festum við bílinn eða hún sko, ég sat bara og var góð stelpa Innocent
En hún Hulda ætlaði nú að vera massa gella og redda þessu, byrjaði að íta já og íta en ekkert gerðist Embarassed já ég var víst ekki nógu sterk Surprised já ég veit hvernig ykkur líður, ég var líka ekkert smá hissa að ég gat ekki ítt bílnum haha
En Hulda deyr aldrei ráðalaus ónei, ég sá einhvern mann vera að moka þarna rétt hjá og auðvitað kallaði ég bara í hann og bað hann um hjálp, ég þurfti ekkert að blikka hann eða neitt þannig  Cool
Auðvitað tókst þetta á endanum Laughing

En já svo hélt dagurinn áfram, Ragnheiður fór í heimsókn í gær og hvað haldiði það var keyrt á bílinn hennar, ekki alveg hennar dagur í gær Surprised

En daginn kláraðist og í dag ákvað ég að fara smá á mínum bíl og hvað haldiði, auðvitað straumlaus, en ekki hvað hahaha
En ég sá manninn í næsta húsi og bað hann um hjálp, vá hvað ég er heppin að það eru alltaf einhverjir karlar í næstu húsum Laughing
 en já hann var alveg til í að hjálpa en auðvitað var annar bíll á stæðinu hjá mér þannig að við þurftum að íta bílnum til að hann myndi ná að starta bílnum. Já það tókst ég er sko massa gella eftir allt samanCool lol

En síðan hefur dagurinn bara gengið vel, reyndar ekki búin en ég er bjartsýn Wink

Eitt að lokum farið varlega Wink

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Hulda Ósk
  • Netfang: huldaosk@hotmail.com
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Leikskólakennari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Skemmtilegar siður

Minning

Klukkan

Könnun

Hvað á að gera um helgina

Leikur dagsins